Sindri Karl á leið á styrktaræfingu. Ljósm. hig

Að hlaupa til ömmu og til baka var upphafið

Hinn fimmtán ára hlaupari, Sindri Karl Sigurjónsson, er ættaður frá Rauðanesi á Mýrum, sonur Halldóru Jónasdóttur og Sigurjóns Svavarssonar. Sindri Karl hafði frá unga aldri æft knattspyrnu en tók upp á því að byrja að hlaupa til ömmu sinnar á næsta bæ og til baka, til að ná sér í betra hlaupaform vegna knattspyrnunnar. Blaðamaður Skessuhorns hitti á Sindra þegar hann var að ljúka skóladegi í Grunnskóla Borgarness og var á leið á styrktaræfingu í íþróttahúsinu í Borgarnesi.

Að hlaupa til ömmu og til baka var upphafið - Skessuhorn