Evrópurútan kemur við á Akranesi á morgun, mánudag

Í tilefni 30 ára afmælis samnings um Evrópska efnahagssvæðið (EES) mun Evrópurúta RANNÍS fara hringinn um landið í september þar sem athygli verður vakin á árangri Evrópuverkefna í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi. Á morgun, mánudaginn 16. september kl. 10-12, verður viðkomustaðurinn Breið þróunarfélag á Akranesi og eru allir velkomnir. Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins, verður með í för og mun spjalla við íbúa og funda með fulltrúum sveitarfélaga um EES-samstarfið og þátttöku Íslands í evrópskum samstarfsverkefnum.

„Frá árinu 2000 hefur rúmum 300 milljónum evra (45 milljörðum íslenskra króna) verið úthlutað í styrki á vegum Evrópusambandsins á Íslandi. Þar af hefur 1,3 milljörðum verið úthlutað til verkefna á Vesturlandi, 670 milljónum króna til verkefna á Norðurlandi vestra og 2,5 milljörðum króna til verkefna á Norðurlandi eystra. Hægt er að skoða gagnvirkt kort sem sýnir yfirlit þessara styrkja, skipt eftir landshlutum og sveitarfélögum: https://www.rannis.is/vidburdir/evropusamvinna/kort/

Evrópurútan og starfsfólk Rannís og sendinefndar Evrópusambandsins munu vera með opna viðburði þar sem íbúar geta komið og kynnt sér evrópusamstarf, evrópustyrki, og rætt við sendiherra Evrópusambandsins. Um er að ræða kynningu á samstarfsáætlunum ESB á sviði menntunar, menningar, rannsókna, nýsköpunar og æskulýðsstarfs og mun Evrópurútan hitta fjölbreytta markhópa á hverjum viðkomustað. Rannís hefur umsjón með öllum helstu samstarfsáætlunum á sviði mennta-, menningar-, vísinda- og fyrirtækjasamstarfs og mun á hringferð sinni um landið veita upplýsingar um: Erasmus+, European Solidary Corps, Horizon Europe, Enterprise Europe Network, Digital Europe, Creative Europe, LIFE og Nordplus. Aðgangur að viðburðum Evrópurútunnar er ókeypis og allir velkomnir.

Viðburðurinn á FB: Akranes: https://fb.me/e/4BTrdwouT

Evrópurútan kemur við á Akranesi á morgun, mánudag - Skessuhorn