Björgunarsveitarmennirnir Símon Grétar Rúnarsson, Andri Ottó Kristinsson og Aðalsteinn Valur Grétarsson við nýja bílinn en inni í bílnum eru líka ungir og upprennandi björgunarsveitarmenn sem sýndu bílnum mikinn áhuga. Ljósm. tfk

Björgunarsveitin Klakkur komin með nýjan bíl

Í síðustu viku fékk Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði afhentan nýjan Toyota Land Cruiser 150 bíl til notkunar. Bíllinn er árgerð 2024 og leysir af hólmi 24 ára gamlan Nissan Patrol bíl sem var á 38 tommu dekkjum. Bílnum var breytt af Arctic Trucks og kemur fullbúinn og tilbúinn til notkunar. Bíllinn er á 40 tommu dekkjum og með úrhleypibúnaði sem ekki var á gamla bílnum. Þetta er mikill munur fyrir sveitina sem getur nú sinnt verkefnum sínum og treyst því að bíllinn standi sig.

Björgunarsveitin Klakkur komin með nýjan bíl - Skessuhorn