Fréttir

true

Briddsarar hefja vetrarstarfið 30. september

Félagar í Bridgefélagi Borgarfjarðar stefna á að hefja spilamennskuna mánudaginn 30. september klukkan 19:30 í Logalandi. Meðan spilarar verða að slípa sig saman og hrista úr sér hrollinn eftir sumarið verða stök tvímenningskvöld á dagskrá. Félagarnir Jón Eyjólfsson og Ingimundur Jónsson, á meðfylgjandi mynd, hvetja alla sem áhuga hafa að mæta og taka þátt í…Lesa meira

true

Norðurá endaði í 1687 löxum

Veiðiárnar eru nú á síðustu metrum þessa veiðitímabils. Laxveiðin hefur víða verið góð og talsvert betri en í fyrra. Flestar árnar hafa bætt sig verulega enda vantaði ekki vatnið í þær í sumar. „Við vorum að loka Norðurá í Borgarfirði og fengum 44 laxa þrátt fyrir að kalt væri í veðri og norðanátt stóran hluta…Lesa meira

true

Aldrei fleiri veðurviðvaranir gefnar út að sumarlagi

Frá því að Veðurstofa Íslands tók upp nýtt viðvörunarkerfi vegna veðurs, hafa aldrei verið gefnar úr eins margar viðvaranir yfir sumartímann og nú í ár. Alls voru 77 viðvaranir gefnar út í sumar, þar af átta appelsínugular, saman borið við sjö viðvaranir í fyrrasumar. Flestar viðvaranir voru gefnar úr á Suðausturlandi og Breiðafirði, tíu talsins,…Lesa meira

true

Flókin bilun í ljósastaurum í Borgarnesi

Fyrir rúmri viku hafa ljósastaurar við göturnar Mávaklett og Fálkaklett í Borgarnesi verið óvirkir. Á heimasíðu Borgarbyggðar kemur fram að um er að ræða nokkuð flókna bilun en útleiðsla virtist einhvers staðar eiga sér stað og bilanaleit tók lengri tíma en vonast var eftir. Vonir eru bundnar til að ljúka bilunarleit í dag og í…Lesa meira

true

Hús á faraldsfæti

Síðasta miðvikudag var flutt heilt hús frá Miðjanesi norður í Bjarnarfjörð. Þetta hús var eitt sinn hluti af vinnubúðum á Grundartanga, var eldhús og borðsalur. Þegar hlutverki þess lauk þar keypti Gústaf Jökull Ólafsson í Reykhólahreppi húsið og flutti að Miðjanesi með það fyrir augum að koma því fyrir þar en af því varð ekki.…Lesa meira

true

Kári fagnaði sigri í þriðju deild og tók við titlinum

Árbær og Kári áttust við í lokaumferðinni í þriðju deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á gervigrasvellinum í Fagradal í Kópavogi. Fyrir leik var ljóst að Káramenn yrðu í efsta sæti deildarinnar nema undur og stórmerki gerðust í leik Augnabliks og Víðis en svo varð ekki. Árbær hafði að meiru að keppa…Lesa meira

true

Blíðskaparveður á Opna septemberpútti

Hið árlega Opna septemberpútt fór fram í fjórða sinn fimmtudaginn 12. september sl. að Hamri í Borgarnesi. Mótið fer ætíð fram á öðrum fimmtudegi í september og er eina púttmótið sem keppt er eftir aldursflokkum. Veðrið lék við keppendur eins og ætíð þegar mótið hefur verið haldið. Keppendur voru 30 frá þremur félögum. Í flokki…Lesa meira

true

Fjórða sætið hlutskipti Víkings eftir sigur á Kormáki/Hvöt

Víkingur Ólafsvík og Kormákur/Hvöt áttust við í lokaumferð 2. deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var viðureignin á Ólafsvíkurvelli. Mikið var undir í leiknum fyrir bæði lið því ef lið Völsungs og Þróttar Vogum töpuðu stigum myndi Víkingur ná öðru sætinu og komast upp í Lengjudeildina. Að sama skapi gat lið Kormáks/Hvatar fallið ef…Lesa meira

true

Gul geðræktarganga í Grundarfirði

Þriðjudaginn 10. september var alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga. Tilgangur dagsins er auk þss að stuðla að forvörnum sjálfsvíga, að minnast þeirra sem hafa fallið fyrir eigin hendi og sýna stuðning og samhug þeim sem þannig hafa misst ástvin. Í tilefni dagsins var gul geðræktarganga í Grundarfirði þar sem gengið var um bæinn og endað í vöfflukaffi…Lesa meira

true

Skagamenn upp í fjórða sætið eftir sigur á KA

ÍA og KA mættust í síðustu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á Elkem vellinum. Með sigri gátu heimamenn komist upp í fjórða sætið á meðan gestirnir höfðu að litlu að keppa og voru líklegast farnir að hugsa aðeins til næsta laugardags þar sem þeir mæta Víkingum í úrslitum Mjólkurbikarsins.…Lesa meira