
Gary Martin fagnar markinu sem hann skoraði úr víti. Ljósm. tfk
Fjórða sætið hlutskipti Víkings eftir sigur á Kormáki/Hvöt
Víkingur Ólafsvík og Kormákur/Hvöt áttust við í lokaumferð 2. deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var viðureignin á Ólafsvíkurvelli. Mikið var undir í leiknum fyrir bæði lið því ef lið Völsungs og Þróttar Vogum töpuðu stigum myndi Víkingur ná öðru sætinu og komast upp í Lengjudeildina. Að sama skapi gat lið Kormáks/Hvatar fallið ef þeir töpuðu leiknum og KF ynni sigur á sama tíma gegn Hetti/Hugin. Víkingur höfðu verið sterkir á heimavelli í sumar, unnið níu leik af tíu og gert eitt jafntefli en einungis unnið tvo útileiki af ellefu.