
Káramenn sáttir með bikarinn eftir leik. Ljósm. Kári
Kári fagnaði sigri í þriðju deild og tók við titlinum
Árbær og Kári áttust við í lokaumferðinni í þriðju deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á gervigrasvellinum í Fagradal í Kópavogi. Fyrir leik var ljóst að Káramenn yrðu í efsta sæti deildarinnar nema undur og stórmerki gerðust í leik Augnabliks og Víðis en svo varð ekki. Árbær hafði að meiru að keppa en með sigri á Kára og á sama tíma myndi Víðir tapa væru þeir á leiðinni upp í 2. deild.