
Ljósbláa húsið hefur fengið nýjan stað. Ljósm. reyholar.is
Hús á faraldsfæti
Síðasta miðvikudag var flutt heilt hús frá Miðjanesi norður í Bjarnarfjörð. Þetta hús var eitt sinn hluti af vinnubúðum á Grundartanga, var eldhús og borðsalur. Þegar hlutverki þess lauk þar keypti Gústaf Jökull Ólafsson í Reykhólahreppi húsið og flutti að Miðjanesi með það fyrir augum að koma því fyrir þar en af því varð ekki.