Rúnar Már skoraði sigurmarkið og fyrsta mark sitt í sumar á móti KA. Ljósm. vaks

Skagamenn upp í fjórða sætið eftir sigur á KA

ÍA og KA mættust í síðustu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á Elkem vellinum. Með sigri gátu heimamenn komist upp í fjórða sætið á meðan gestirnir höfðu að litlu að keppa og voru líklegast farnir að hugsa aðeins til næsta laugardags þar sem þeir mæta Víkingum í úrslitum Mjólkurbikarsins. Það er óhætt að segja að aðstæður til knattspyrnuiðkunar hafi verið með ágætum, létt gola og sól og völlurinn í góðu standi.

Skagamenn upp í fjórða sætið eftir sigur á KA - Skessuhorn