Briddsarar hefja vetrarstarfið 30. september

Félagar í Bridgefélagi Borgarfjarðar stefna á að hefja spilamennskuna mánudaginn 30. september klukkan 19:30 í Logalandi. Meðan spilarar verða að slípa sig saman og hrista úr sér hrollinn eftir sumarið verða stök tvímenningskvöld á dagskrá. Félagarnir Jón Eyjólfsson og Ingimundur Jónsson, á meðfylgjandi mynd, hvetja alla sem áhuga hafa að mæta og taka þátt í starfinu í vetur.

Briddsarar hefja vetrarstarfið 30. september - Skessuhorn