
Rekstur Guðlaugar hefur batnað þrátt fyrir fækkun gesta. Ljósm. vaks
Gestum í Guðlaugu fækkar en reksturinn batnar
Ef borið er saman tímabilið janúar til og með ágúst árin 2023 og 2024 hefur gestum í baðlaugina Guðlaugu á Akranesi fækkað. Gestir á þessu ári voru 9.860, eða 41 að meðaltali á dag. Árið 2023 var heildarfjöldi á sama tímabili 15.290, eða 62 á dag.