
Alþingishúsið við Austurvöll. Ljósm. mm
Alþingi býður í heimsókn laugardaginn 14. september
Almenningi gefst kostur á að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis á morgun, laugardaginn 14. september. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram í leiðsögn um Alþingishúsið en ekki þarf að skrá sig í heimsókn í Smiðju. Leiðsögn í Alþingishúsinu verður frá kl. 9 til 12 og aftur frá kl. 14 og 17 (bókað fyrirfram). Hleypt verður inn í húsið á 20 mínútna fresti, hámark 35 manns í senn, og tekur hver leiðsögn 30 mínútur. Gengið er inn um aðalinnganginn í Skála, við hlið Alþingishússins. Skráning er hér