
Hópurinn í fallegu veðri fyrir framan Hrútinn á Hellissandi. Ljósm. snb.is
Komu í heimsókn frá Vestmanna í Færeyjum
Síðasta mánudag komu í heimsókn til Snæfellsbæjar bæjarstjóri og bæjarfulltrúar frá Vestmanna, vinabæ Snæfellsbæjar í Færeyjum. Heimsóknir hafa verið reglulegar undanfarin ár, að undanskildum covid árunum, en þetta er fyrsta vinabæjarheimsóknin síðan fyrir faraldurinn.