
Benedikt Vilborgar og Jóhannesson. Ljósm. hig
Ég er eins manns deild – segir gagnavörðurinn Benedikt
Benedikt Vilborgar og Jóhannesson ólst upp í Búðardal og býr nú ásamt fjölskyldu sinni í Hörðudal í Dölum. Benedikt vinnur sem gagnavörður (e.DIT) og hefur fyrirtæki hans, DIT Iceland unnið að mörgum af stærstu þáttaröðum og kvikmyndum sem teknar hafa verið upp á Íslandi. Nýverið vann hann að þáttaröðinni True Detective, kvikmyndinni Heart of Stone en kom einnig að gerð íslensku þáttanna Fyrsta blikið sem sýnt var á Stöð 2. Benedikt, eða Benni eins og hann er jafnan kallaður, settist niður með blaðamanni í Geirabakarí í Borgarnesi og spjallaði um daginn, veðrið, Jodie Foster, Dalina og allt þar á milli.