Svipmynd frá Ólafsvík. Ljósm. mm

Vantar svörun frá Snæfellsnesi við þjónustukönnun Byggðastofnunar

„Ertu stanslaust á ferðinni til að sækja þér nauðsynlega þjónustu? Hvernig er aðgengi og hvert er framboð þjónustu í þínu nærumhverfi?“ Þannig hljóma spurningar sem Byggðastofnun setur fram í þjónustukönnun sem nú er í gangi. Stofnunin hvetur íbúa landsins til að taka þátt í þessari þjónustukönnun þar sem spurt er um þjónustusókn íbúa á landsbyggðinni og viðhorf til breytinga á þjónustu. „Þó að sund- og baðstöðum fjölgi víðsvegar á landinu þá búa margir íbúar úti á landi við þær aðstæður að þurfa að ferðast um langan veg til að komast til læknis, fara á pósthús eða með bílinn í bifreiðaskoðun svo fátt eitt sé nefnt. Er einhver þjónusta sem íbúar óttast að missa úr sinni heimabyggð,“ er spurt.

Vantar svörun frá Snæfellsnesi við þjónustukönnun Byggðastofnunar - Skessuhorn