
Borgarnes er oftast slegið inn af þeim þéttbýlisstöðum sem fólk „googlar“ á Vesturlandi. Ljósm. mm
Helstu seglar Vesturlands kynntir
Markaðsstofa Vesturlands, í samstarfi við birtingar- og ráðgjafafyrirtækið Datera, hefur gefið út skýrslu um leitaráhuga í Bandaríkjunum, Bretlandi og Íslandi á ferðatengdum leitarorðum fyrir Vesturland. Þar er farið yfir fjölda leita á Google, þar sem ferða- og upplýsingatengd leitarorð sem tengjast ferðamannastöðum á Vesturlandi voru tekin saman auk þess sem tekinn var fjöldi leita að meðaltali á mánuði á tímabilinu maí 2023 til maí 2024. Í ferðaþjónustu er talað um að seglar séu þeir ferðamannastaðir sem hafa þann eiginleika að laða að sér fólk, annað hvort til landsins eða á tiltekið svæði þess.