Fréttir

true

Mannabreytingar hjá Skallagrími

Scott Bowen, þjálfara Skallagríms í knattspyrnu, hefur verið sagt upp störfum. Liðið situr nú í 9. sæti deildarinnar með sjö stig, jafn mörg og neðsta lið deildarinnar, RB frá Hafnarfirði. Tvö lið falla úr 4. deild en Skallagrímur er nú sex stigum á eftir liðinu sem situr í 8. sæti deildarinnar og eingöngu fimm leikir…Lesa meira

true

Strandveiðimenn héldu uppskeruhátíð

Undir lok júlímánaðar hélt félag smábátasjómanna á Akranesi grillveislu til að halda upp á lok strandveiðanna í sumar, en þeim lauk um miðjan mánuðinn. Í sumar voru 22 bátar gerðir út til strandveiða frá Akranesi. Að sögn Péturs Lárussonar starfmanns Faxaflóahafna var veiðin almennt góð í sumar og mikið af stórum fiski sem komið var…Lesa meira

true

Skagamenn hafa bætt við sig leikmönnum

Bæði karla- og kvennalið ÍA hafa bætt við sig leikmönnum fyrir lokaátökin í Bestudeild karla og í Lengjudeild kvenna. Stærstu tíðindin voru þau að Haukur Andri Haraldsson kom að láni frá franska liðinu Lille og gildir lánstíminn út júní 2025. Haukur gekk til liðs við franska liðið frá ÍA fyrir um ári síðan. Það er…Lesa meira

true

Kári úr leik í bikarnum

Káramenn féllu úr leik í átta liða úrslitum í fótbolta.net bikarkeppninni í gærkvöldi þegar þeir töpuðu gegn Tindastóli 1:2 í framlengdum leik á Sauðárkróki. Fyrir leikinn töldust Káramenn sigurstranglegri þar sem sem liðið er í efsta sæti 3. deildar, en Tindastóll leikur í deild neðar. Káramenn byrjuðu leikinn vel og náði Þór Llorens Þórðarson forystunni…Lesa meira

true

Héldu markað til stuðnings RKÍ

Um verslunarmannahelgina var haldin fjáröflun í Húsafelli þar sem ýmsir nytjahlutir skiptu um eigendur. Fyrir sölunni stóðu þær Vaka, Febrún Sól og Lóa. Í fyrra söfnuðu þær fyrir björgunarsveitina OK en að þessu sinni var það Rauði krossinn sem naut góðs af framtaki þeirra. Á myndinni er einnig Guðrún H Sederholm sem aðstoðaði stúlkurnar.Lesa meira

true

Fyrirmyndarbikar UMFÍ í Dalina

Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út þegar tilkynnt var á lokakvöldi Unglingamóts UMFÍ í Borgarnesi að þátttakendur frá Ungmennasambandi Dalamanna og Breiðfirðinga (UDN) hefðu hlotið Fyrirmyndarbikar UMFÍ. Bikarinn er afhentur í lok hvers Unglingalandsmóts til héraðssambands eða íþróttabandalags sem hefur sýnt fyrirmyndarframkomu innan sem utan keppni á mótinu. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ kallaði þátttakendur UDN upp…Lesa meira

true

Tveir tapleikir hjá Víkingi en halda öðru sætinu

Víkingur Ólafsvík spilaði tvo útileiki vikuna sem Skessuhorn var í útgáfufríi. Liðið tapaði naumlega gegn Þrótti í Vogum 2:3 í leik sem fram fór Vogaídýfuvellinum 26. júlí sl. Eiður Jack Erlingsson skoraði fyrir Þrótt strax á 3. mínútu, en Gary Martin jafnaði metin fyrir Víking á 33. mínútu leiksins og var staðan jöfn í hálfleik.…Lesa meira

true

Kepptu í traktoratorfæru á Flúðum

Laugardaginn 3. ágúst gekkst Akstursíþróttasamband Íslands fyrir traktoratorfæru á Flúðum í Hrunamannahreppi. Keppt var í drullupitti við Laxá. Meðal keppenda voru feðgar úr Stykkishólmi, þeir Guðmundur Þór Guðþórsson og synir hans Elías Viðar og Sindri Þór. Kepptu þeim á tveimur dráttarvélum og lentu allir í verðlaunasætum. Sumarliði Ásgeirsson ljósmyndari úr Stykkishólmi tók meðfylgjandi myndir.Lesa meira

true

Tap Skagamanna gegn Stjörnunni

Meistaraflokkur karla hjá ÍA tapaði gegn Stjörnunni 1:3 í leik sem fram fór 28. júlí sl. Skagamenn leiddu í hálfleik 1:0 með marki frá Viktori Jónssyni, sem kom á lokaandartökum hálfleiksins. Stjörnumenn komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og jöfnuðu með marki frá Baldri Loga Guðlaugssyni. Skot Baldurs Loga virtist hættulítið af löngu færi…Lesa meira

true

Káramenn með örugga forystu á toppi þriðju deildar

Káramenn frá Akranesi léku tvo leiki í lok júlí í sumarfríviku Skessuhorns – og unnu þá báða.  Fyrri leikurinn var gegn Vængjum Júpiters á Fjölnisvelli og lauk honum með sigri Káramanna 3:0. Sigurjón Logi Bergþórsson skoraði strax á 14. mínútu leiksins fyrir gestina í Kára og í síðari hálfleik bætti Hektor Bergmann Garðarsson við tveimur…Lesa meira