Kepptu í traktoratorfæru á Flúðum

Laugardaginn 3. ágúst gekkst Akstursíþróttasamband Íslands fyrir traktoratorfæru á Flúðum í Hrunamannahreppi. Keppt var í drullupitti við Laxá. Meðal keppenda voru feðgar úr Stykkishólmi, þeir Guðmundur Þór Guðþórsson og synir hans Elías Viðar og Sindri Þór. Kepptu þeim á tveimur dráttarvélum og lentu allir í verðlaunasætum. Sumarliði Ásgeirsson ljósmyndari úr Stykkishólmi tók meðfylgjandi myndir.

Kepptu í traktoratorfæru á Flúðum - Skessuhorn