
Ómar, Böðvar og Anton í góðum gír. Ljósmyndir: Kolla Ingvars
Strandveiðimenn héldu uppskeruhátíð
Undir lok júlímánaðar hélt félag smábátasjómanna á Akranesi grillveislu til að halda upp á lok strandveiðanna í sumar, en þeim lauk um miðjan mánuðinn. Í sumar voru 22 bátar gerðir út til strandveiða frá Akranesi. Að sögn Péturs Lárussonar starfmanns Faxaflóahafna var veiðin almennt góð í sumar og mikið af stórum fiski sem komið var með að landi. Þá hafi verðið sömuleiðis verið gott. Það var því ástæða til að fagna og boðið var upp á steikta hamborgara og drykki við markaðinn. Við leyfum meðfylgjandi myndum að tala sínu máli.