
Nýir leikmenn og þjálfarar. Frá vinstri: Viktor Ingi Jakobsson leikmaður, Carlos Saavedra þjálfari og leikmaður og Declan Redmond þjálfari og leikmaður.
Mannabreytingar hjá Skallagrími
Scott Bowen, þjálfara Skallagríms í knattspyrnu, hefur verið sagt upp störfum. Liðið situr nú í 9. sæti deildarinnar með sjö stig, jafn mörg og neðsta lið deildarinnar, RB frá Hafnarfirði. Tvö lið falla úr 4. deild en Skallagrímur er nú sex stigum á eftir liðinu sem situr í 8. sæti deildarinnar og eingöngu fimm leikir eftir af deildinni.