Fréttir

true

Andlát – Gyða Bergþórsdóttir

Látin er Gyða Bergþórsdóttir fyrrum skólastjóri og kennari, 95 ára að aldri. Gyða fæddist 6. apríl 1929 í Fljótstungu í Hvítársíðu og ólst þar upp í hópi sjö systkina sem nú eru öll látin. Hún var farkennari og organisti í sveitum Borgarfjarðar á yngri árum, byrjaði að spila við messur þegar hún var innan við…Lesa meira

true

Íslandsmót í hrútadómum verður aðra helgi í Sævangi á Ströndum

Árlegt Íslandsmeistaramót í hrútadómum verður haldið á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum sunnudaginn 18. ágúst næstkomandi og hefst keppnin kl. 14. „Það er alltaf góð þátttaka í hrútadómunum, en keppt er bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra og hræddra hrútaþuklara. Venjulega eru keppendur um 50 og koma víða að. Fjölmargir mæta…Lesa meira

true

Dýrabær opnaður á nýjum stað á Akranesi

Verslunin Dýrabær hefur verið starfrækt á Akranesi frá árinu 2018 og hefur verið til húsa við Stillholti 23. Nú um mánaðamótin síðustu var verslunin flutt í verslanakjarnann við Smiðjuvelli 32. „Húsnæðið var orðið of lítið fyrir það magn af vörum sem við erum að selja, en einnig var kominn orðrómur um að rífa ætti húsið…Lesa meira

true

Fergusondagur, bókarkynning og hnallþórur á Hvanneyri

Laugardaginn 10. ágúst verður Ferguson-dagur á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Frá klukkan 12-16 munu félagar í Fergusonfélaginu verða með viðveru á safninu, sinna reglulegu viðhaldi og segja frá vélunum. Ef veður leyfir verða vélar teknar út og viðraðar. Sveitamarkaður verður í gangi í hlöðu Halldórsfjóss. Sama dag mun Bjarni Guðmundsson segja frá nýrri bók sinni;…Lesa meira

true

Erika Mjöll í öðru sæti í keppni um sterkastu konu Íslands

Keppnin Sterkasta kona Íslands var haldin á Akureyri laugardaginn 3. ágúst. Í ár var það Ragnheiður Ósk Jónasdóttir sem bar sigur úr býtum í keppninni en hún setti til dæmis nýtt Íslandsmet í réttstöðulyftu þegar hún lyfti 245 kg. Keppt var í sex greinum en ásamt réttstöðulyftu var keppt í Dinnie steinahaldi, rammaburði og uxagöngu,…Lesa meira

true

Niðurstöður kynntar um umhverfismat vindorkuvers í Sólheimum

Þriðjudaginn 13. ágúst næstkomandi klukkan 20 verður haldinn kynningarfundur í Dalabúð í Búðardal þar sem kynntar verða niðurstöður umhverfismats á vindorkugarði í landi Sólheima í Laxárdal í Dölum. Fundurinn er á vegum framkvæmdaraðilans Qair og verður samkvæmt tilkynningu boðið upp á kaffiveitingar.Lesa meira

true

Vestri og ÍA skildu jöfn á Ísafirði

Skagamenn léku gegn Vestra í Bestu deild karla í knattspyrnu á Ísafirði í gær og lauk leiknum með markalausu jafntefli. Úrslitin verða að teljast sanngjörn því bæði lið fengu góð marktækifæri í leiknum sem þeim ekki tókst að nýta. Liðin sóttu á víxl í byrjun leiks án þess að skapa sér afgerandi færi. Það var…Lesa meira

true

Upplýsingamiðstöð ferðamála opnuð í Pakkhúsinu

Upplýsingamiðstöðin í Snæfellsbæ hefur verið í Átthagastofunni undanfarin ár, en hefur nú verið færð yfir í Pakkhúsið í Ólalfsvík. Upplýsingamiðstöðin verður opin virka daga frá 10:00 – 14:00 en þar verður veitt ráðgjöf fyrir ferðamenn og upplýst hvað er í boði á svæðinu, bæklingum dreift og aðgangur veittur að interneti, salernum og fleiru. Pakkhúsið er…Lesa meira

true

Samningur um umsjón og uppbyggingu Brekkuskógar

Nýverið var undirritaður samningur á milli Dalabyggðar, Skógræktarfélags Dalasýslu og Skógræktarfélag Íslands um uppbyggingu í og við Brekkuskóg í Búðardal. Markmið samningsins er að stuðla að landvernd og tryggja íbúum sveitarfélagsins og gestum svæði til útivistar um ókomna framtíð. Um er að ræða svæði norðvestan við Búðardal, sem nú nefnist Brekkuskógur og var gróðursettur í…Lesa meira

true

Jaðarsbakkalaug lokuð vegna viðhalds

Vegna árlegs viðhalds verður Jaðarsbakkalaug á Akranesi lokuð í næstu viku, frá 12. – 18. ágúst. Þreksalurinn verður lokaður fimmtudaginn 15. ágúst og föstudaginn 16. ágúst en annars opinn frá kl. 9 – 19. Búningsklefar verða lokaðir á meðan viðhaldi stendur.Lesa meira