
Verslunin er nú flutt að Smiðjuvöllum 32. Ljósmyndir: hig
Dýrabær opnaður á nýjum stað á Akranesi
Verslunin Dýrabær hefur verið starfrækt á Akranesi frá árinu 2018 og hefur verið til húsa við Stillholti 23. Nú um mánaðamótin síðustu var verslunin flutt í verslanakjarnann við Smiðjuvelli 32. „Húsnæðið var orðið of lítið fyrir það magn af vörum sem við erum að selja, en einnig var kominn orðrómur um að rífa ætti húsið á næstunni þannig að ákveðið var að koma okkur hingað inn, í stærra og bjartara rými,“ segir Anna Margrét Sveinsdóttir, sölumaður hjá Dýrabæ í samtali við Skessuhorn. „Við höfum haft mjög góðan og stóran hóp viðskiptavina í öll þessi ár en við erum að selja allt frá kattafóðri upp í landbúnaðarvörur. Okkur líst vel á þessa breytingu og hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum hér að Smiðjuvöllum,“ segir Anna Margrét.