Sigurvegarar í fyrra. „Strandamönnum þykir alltaf nokkuð gott þegar heimafólk vinnur titilinn og munu því væntanlega reyna eins og þeir geta til að halda honum áfram.“ Ljósm. aðsend

Íslandsmót í hrútadómum verður aðra helgi í Sævangi á Ströndum

Árlegt Íslandsmeistaramót í hrútadómum verður haldið á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum sunnudaginn 18. ágúst næstkomandi og hefst keppnin kl. 14. „Það er alltaf góð þátttaka í hrútadómunum, en keppt er bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra og hræddra hrútaþuklara. Venjulega eru keppendur um 50 og koma víða að. Fjölmargir mæta svo til að sjá á keppendur sýna snilli sína,“ segir í tilkynningu.

Íslandsmót í hrútadómum verður aðra helgi í Sævangi á Ströndum - Skessuhorn