
Niðurstöður kynntar um umhverfismat vindorkuvers í Sólheimum
Þriðjudaginn 13. ágúst næstkomandi klukkan 20 verður haldinn kynningarfundur í Dalabúð í Búðardal þar sem kynntar verða niðurstöður umhverfismats á vindorkugarði í landi Sólheima í Laxárdal í Dölum. Fundurinn er á vegum framkvæmdaraðilans Qair og verður samkvæmt tilkynningu boðið upp á kaffiveitingar.