
Hvanneyri. Ljósm. mm
Fergusondagur, bókarkynning og hnallþórur á Hvanneyri
Laugardaginn 10. ágúst verður Ferguson-dagur á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Frá klukkan 12-16 munu félagar í Fergusonfélaginu verða með viðveru á safninu, sinna reglulegu viðhaldi og segja frá vélunum. Ef veður leyfir verða vélar teknar út og viðraðar. Sveitamarkaður verður í gangi í hlöðu Halldórsfjóss.