Berglind Bergsdóttir, Ragnheiður Ósk Jónasdóttir og Erika Mjöll Jónsdóttir. Ljósm. Jón K. Jónsson.

Erika Mjöll í öðru sæti í keppni um sterkastu konu Íslands

Keppnin Sterkasta kona Íslands var haldin á Akureyri laugardaginn 3. ágúst. Í ár var það Ragnheiður Ósk Jónasdóttir sem bar sigur úr býtum í keppninni en hún setti til dæmis nýtt Íslandsmet í réttstöðulyftu þegar hún lyfti 245 kg. Keppt var í sex greinum en ásamt réttstöðulyftu var keppt í Dinnie steinahaldi, rammaburði og uxagöngu, blandaðri pressugrein og hleðslugrein. Fimm konur kepptu um titilinn og var Borgnesingurinn Erika Mjöll Jónsdóttir ein af þeim. Gríðarlega hörð keppni var um annað sætið og urðu Berglind Bergsdóttir og Erika Mjöll jafnar á stigum en Erika náði oftar hærri sætum í greinunum sex og náði því öðru sæti í keppninni.

Erika Mjöll í öðru sæti í keppni um sterkastu konu Íslands - Skessuhorn