
Andlát – Gyða Bergþórsdóttir
Látin er Gyða Bergþórsdóttir fyrrum skólastjóri og kennari, 95 ára að aldri. Gyða fæddist 6. apríl 1929 í Fljótstungu í Hvítársíðu og ólst þar upp í hópi sjö systkina sem nú eru öll látin. Hún var farkennari og organisti í sveitum Borgarfjarðar á yngri árum, byrjaði að spila við messur þegar hún var innan við fermingu. Hún var sjálflærð á orgel, en heima í Fljótstungu var lítið orgel og bókin Orgelskóli sem hún sagðist hafa gruflað mikið í en faðir hennar þekkti nóturnar og kenndi börnunum. Gyða var einn vetur í Hveragerði til að læra undir landspróf, að undangengnu tungumálanámi eftir útvarpinu. Hún fór í nokkra tíma tíma hjá organista og einnig á organistanámskeið í Skálholti. Gyða var viðriðin kórastarf á Hvanneyri í meira en hálfa öld. Með hléum var hún jafnlengi organisti í Fitjakirkju í Skorradal. Gyða giftist Guðmundi Þorsteinssyni í Efri-Hrepp í Skorradal og var húsfreyja þar frá 1953. Börn þeirra eru tvö; Guðrún og Bergþór og barnabörnin eru sex og langömmubörnin 15.