
Frá undirritun samnings. Frá vinstri: Brynjólfur Jónsson framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Íslands, Jónatan Garðarsson formaður stjórnar Skógræktarfélags Íslands, Sigurbjörn Einarsson stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Dalasýslu, Sigurður Ólafsson í stjórn Skógræktarfélagsins, Guðlaug Kristinsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsnefndar, Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri og Jakob K. Kristjánsson formaður Skógræktarfélags Dalasýslu. Ljósm. dalir.is
Samningur um umsjón og uppbyggingu Brekkuskógar
Nýverið var undirritaður samningur á milli Dalabyggðar, Skógræktarfélags Dalasýslu og Skógræktarfélag Íslands um uppbyggingu í og við Brekkuskóg í Búðardal. Markmið samningsins er að stuðla að landvernd og tryggja íbúum sveitarfélagsins og gestum svæði til útivistar um ókomna framtíð. Um er að ræða svæði norðvestan við Búðardal, sem nú nefnist Brekkuskógur og var gróðursettur í kringum 1990, upphaflega samkvæmt samningi milli Laxárdalshrepps og Skógræktarfélags Dalasýslu, en sá samningur er nú útrunninn.