Fréttir

true

Sækja þarf um jarðræktarstyrki vegna útiræktunar fyrir miðjan mánuðinn

Matvælaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til manneldis. Sótt er um á Afurð.is.  Umsóknum skal skilað eigi síðar en á miðnætti 15. ágúst næstkomandi. Skilyrði fyrir veitingu stuðnings eru skil á skýrsluhaldi í skýrsluhaldsforritinu Jörð og fullnægjandi túnkort af ræktunarspildu sem sótt er um styrk…Lesa meira

true

Flemming-pútt mótið var haldið á Hvammstanga

Föstudaginn 26. Júlí, á héraðshátíð Vestur-Húnvetninga – Eldur í Húnaþingi, fór fram í fjórtánda sinn púttmót sem undirritaður hefur staðið að með hjálp góðra vina á Hvammstanga frá 2011. Aðstaða til keppni var sæmileg, smá rekja og völlur nokkuð loðinn, en þátttakendur létu það ekki á sig fá. Að þessu sinni var þátttaka lítil, en…Lesa meira

true

Gönguferð um Grjótháls á sunnudaginn undir slagorðinu Heiðar í háska

„Fólkið í sveitinni, Landvernd og Mótvindur efna til göngu um heiðarland í háska á Grjóthálsi á sunnudaginn,“ segir í tilkynningu. „Við leggjum af stað frá Króki í Norðurárdal kl. 10:00 á sunnudaginn en gengið verður undir slagorðinu „Heiðar í háska”.” „Við göngum eftir Grjóthálsi á milli Norðurárdals og Þverárhlíðar. Göngufólk mun sjá þá náttúru sem…Lesa meira

true

Fleiri útlendingar en færri Íslendingar um Leifsstöð í júlí

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 277 þúsund í nýliðnum júlí samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða um 1.300 fleiri brottfarir en mældust í júlímánuði í fyrra (+0,5%). Um þriðjungur brottfara erlendra farþega voru Bandaríkjamenn, Þjóðverjar í öðru sæti og Pólverjar í þriðja. Sé litið lengra aftur í tímann má sjá svipaðan…Lesa meira

true

Skagakonur komnar í toppbaráttuna eftir sigur á ÍR

Meistaraflokkur kvenna hjá ÍA gerði góða ferð á ÍR-völlinn í gærkvöldi og sigruðu þær heimakonur 3:2. Með sigrinum eru þær nú í fjórða sæti deildarinnar með 22 stig, jafn mörg stig og ÍBV og Grótta sem eru í öðru og þriðja sætinu. En þessi lið eiga leik inni á Skagakonur, en það eru tvö lið…Lesa meira

true

Opnað fyrir umsóknir um atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrki

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands fyrir úthlutun í september næstkomandi. Í þessari úthlutun verða veittir styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem…Lesa meira

true

Samið um rekstur mötuneytis á Hvanneyri

Í gær var undirritaður samningur við Hjelm veitingar ehf. um rekstur mötuneytis í Ásgarði, aðalbyggingu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Það voru Elmar Daði Sævarsson og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor sem skrifuðu undir samninginn og mun mötuneytið verða opnað næstkomandi mánudag, 12. ágúst. „Það verður spennandi að geta tekið á móti nemendum, starfsfólki og gestum nú…Lesa meira

true

Síðustu forvöð að bjóða í mjólkurkvóta fyrir næsta markað

Markaður fyrir greiðslumark í mjólk verður haldinn 2. september næstkomandi. Að hámarki er hægt að óska eftir 50.000 lítrum til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000 lítrum árlega. „Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurð.is. Opnað hefur verið fyrir tilboð. Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 10. ágúst nk. Vakin er…Lesa meira

true

Nýr prestur til starfa þegar viðgerðum á prestsbústað lýkur

Séra Hildur Björk Hörpudóttir hefur látið af starfi sóknarprests í Reykholts- og Hvanneyrarprestakalli og hafið störf sem Fríkirkjuprestur í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns verður staða sóknarprests í Reykholti auglýst með haustinu. Unnið er að gerð þarfagreiningar fyrir starfið skv. reglum Þjóðkirkjunnar, en það er forsenda þess að starf geti verið auglýst. „Nú standa jafnframt yfir…Lesa meira

true

Fyrsta námskeiðið fyrir foreldra um uppeldi og nám haldið á Akranesi

Akraneskaupstaður er fyrsta sveitarfélagið til að bjóða upp á foreldranámskeið á vegum þróunarverkefnisins „Föruneyti barna – samstarf um stuðning við uppeldi og nám.“ Þessa dagana hljóta 25 leiðbeinendur frá Akranesi og víðar þjálfun í að halda námskeiðin. Markmið námskeiða er að valdefla foreldra í uppeldishlutverki sínu og efla þjónustu við börn og foreldra. Samkvæmt tilkynningu…Lesa meira