Gönguferð um Grjótháls á sunnudaginn undir slagorðinu Heiðar í háska

„Fólkið í sveitinni, Landvernd og Mótvindur efna til göngu um heiðarland í háska á Grjóthálsi á sunnudaginn,“ segir í tilkynningu. „Við leggjum af stað frá Króki í Norðurárdal kl. 10:00 á sunnudaginn en gengið verður undir slagorðinu „Heiðar í háska"."

„Við göngum eftir Grjóthálsi á milli Norðurárdals og Þverárhlíðar. Göngufólk mun sjá þá náttúru sem áformað er að fórna og breyta í iðnaðarsvæði fyrir vindorkuver fyrir að minnsta kosti fjórtán tvöhundruð metra háar vindtúrbínur með tilheyrandi steypumannvirkjum, vegagerð og jarðraski. Nær allir íbúar og landeigendur í nágrenni við fyrirhuguð áform hafa lýst sig andvíga byggingu vindorkuvera á svæðinu og veiðifélag Norðurár hefur sent frá sér harðorða og einróma ályktun gegn áformunum."

Þá segir í tilkynningu að á Grjóthálsi sé festi falinna silungsvatna, berjaland og gamlar gönguslóðir á milli sveita sem eru dýrmæti fyrir komandi kynslóðir. „Í Norðurárdal og Þverárhlíð er mikil náttúrufegurð og fjallasýn er af Grjóthálsi til allra átta í Borgarfirði.  Baulutindur og hennar friðlýsta umhverfi vakir yfir Grjóthálsinum og rammar hann inn. Kvöldkyrrt er og fagurt á hálsinum við vötn, mýrar og tjarnir í þessu einstaka heiðalandi. Þangað leitar mófuglinn og þar er flugumferð hafarna og heimkynni himbrima, álfta og heiðagæsa. Hálsinn iðar af lífi, líkt og íslenskar heiðar gera. Þar er fugl og fiskur og umfram allt fjallakyrrð svo skammt frá mannabyggð. Grjóthálsinn teygir sig að Holtavörðuheiði og Tvídægru sem tengir Arnarvatnsheiði og er þannig hluti af samfelldu heiðarlandi sem er einstakt á veraldarvísu. Í göngunni fæst einnig gott útsýni á Hvammsmúla undir Baulutindi þar sem erlend stórfyrirtæki áformar einnig að reisa vindorkuver.

Meðmælagangan með náttúru Íslands er um fimmtán kílómetrar í þetta sinn og verður lagt af stað frá Króki í Norðurárdal klukkan tíu á sunnudagsmorgun eins og fyrr segir. Um sextíu manns hafa þegar skráð sig í gönguna, sem er öllum opin og kostar bara skipulag, nesti og nýja skó. Nánari upplýsingar er að finna hjá Landvernd."

Gönguferð um Grjótháls á sunnudaginn undir slagorðinu Heiðar í háska - Skessuhorn