Námskeiðið á Akranesi var í þessari viku undir leiðsögn Caroline White og Siri Gammelsæter frá Invest in Play. Í kjölfarið verður foreldrum barna á Akranesi boðin þátttaka í foreldranámskeiðum þeim að kostnaðarlausu. Auk þátttakenda og leiðbeinenda eru á myndinni Ásmundur Einar Daðason menntamálaráðherra og Haraldur Benediktsson bæjarstjóri.

Fyrsta námskeiðið fyrir foreldra um uppeldi og nám haldið á Akranesi

Akraneskaupstaður er fyrsta sveitarfélagið til að bjóða upp á foreldranámskeið á vegum þróunarverkefnisins „Föruneyti barna – samstarf um stuðning við uppeldi og nám.“ Þessa dagana hljóta 25 leiðbeinendur frá Akranesi og víðar þjálfun í að halda námskeiðin. Markmið námskeiða er að valdefla foreldra í uppeldishlutverki sínu og efla þjónustu við börn og foreldra. Samkvæmt tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu er stefnt að því að hafa þessi námskeið aðgengileg í sem flestum leik- og grunnskólum landsins.

Fyrsta námskeiðið fyrir foreldra um uppeldi og nám haldið á Akranesi - Skessuhorn