Prestsbústaðurinn í Reykholti er neðst fyrir miðri mynd. Húsið var upphaflega hannað af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins og byggt á sama tíma og í stíl við skólahús Héraðsskólans árið 1931. Prestsbústaðurinn hefur áður gengið í gegnum mikla endurnýjun en þarfnast nú lagfæringa áður en nýr sóknarprestur mun flytja í húsið. Ljósm. mm

Nýr prestur til starfa þegar viðgerðum á prestsbústað lýkur

Séra Hildur Björk Hörpudóttir hefur látið af starfi sóknarprests í Reykholts- og Hvanneyrarprestakalli og hafið störf sem Fríkirkjuprestur í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns verður staða sóknarprests í Reykholti auglýst með haustinu. Unnið er að gerð þarfagreiningar fyrir starfið skv. reglum Þjóðkirkjunnar, en það er forsenda þess að starf geti verið auglýst. „Nú standa jafnframt yfir miklar framkvæmdir á prestsbústaðnum í Reykholti. Skipt verður um þak á húsinu seinna í haust og þörf er á miklum múrviðgerðum á húsinu. Þetta eru auðvitað framkvæmdir sem krefjast sæmilegs veðurs og ég ætla ekki að gera lesendum þínum þann óleik að fara að lýsa veðrinu sem við höfum þurft að þola hingað til,“ segir Heimir Hannesson samskiptastjóri á Biskupsstofu í samtali við Skessuhorn. „En bjartsýni okkar er óbilandi, og við sjáum ekkert nema sól, blíðu og nýtt þak í náinni framtíð,“ bætir hann við.