Þotueggið við Leifsstöð. Ljósm. úr safni/ Isavia

Fleiri útlendingar en færri Íslendingar um Leifsstöð í júlí

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 277 þúsund í nýliðnum júlí samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða um 1.300 fleiri brottfarir en mældust í júlímánuði í fyrra (+0,5%). Um þriðjungur brottfara erlendra farþega voru Bandaríkjamenn, Þjóðverjar í öðru sæti og Pólverjar í þriðja. Sé litið lengra aftur í tímann má sjá svipaðan fjölda brottfara í júlí 2018. Í júlí voru brottfarir Íslendinga tæplega 63 þúsund í mánuðinum, átta þúsund færri en í sama mánuði árið 2023.

Fleiri útlendingar en færri Íslendingar um Leifsstöð í júlí - Skessuhorn