
Ragnheiður og Elmar við undirritun samnings um rekstur mötuneytisins. Ljósm. LbhÍ
Samið um rekstur mötuneytis á Hvanneyri
Í gær var undirritaður samningur við Hjelm veitingar ehf. um rekstur mötuneytis í Ásgarði, aðalbyggingu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Það voru Elmar Daði Sævarsson og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor sem skrifuðu undir samninginn og mun mötuneytið verða opnað næstkomandi mánudag, 12. ágúst. „Það verður spennandi að geta tekið á móti nemendum, starfsfólki og gestum nú þegar nýtt skólaár er að hefjast. Við bjóðum Elmar og hans teymi innilega velkominn til okkar á Hvanneyri," sagði Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor við undirritunina.