Fyrirmyndarbikar UMFÍ í Dalina

Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út þegar tilkynnt var á lokakvöldi Unglingamóts UMFÍ í Borgarnesi að þátttakendur frá Ungmennasambandi Dalamanna og Breiðfirðinga (UDN) hefðu hlotið Fyrirmyndarbikar UMFÍ. Bikarinn er afhentur í lok hvers Unglingalandsmóts til héraðssambands eða íþróttabandalags sem hefur sýnt fyrirmyndarframkomu innan sem utan keppni á mótinu.

Fyrirmyndarbikar UMFÍ í Dalina - Skessuhorn