Fréttir

true

Maðurinn með ljáinn var mættur í Árbæjarsafn

Á vef mbl.is var í gær birt bráðgóð myndskreytt frásögn af heyönnum á Árbæjarsafni í útjaðri Reykjavíkur síðastliðinn sunnudag. Í fréttinni er sagt frá því að ungir sem aldnir hafi fengið tækifæri til að taka þátt í heyönnum eins og þær tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla. Fram kemur að ungviðið hafi virst taka vel í að…Lesa meira

true

Jafnt í Kaplakrika

Skagamenn heimsóttu FH-inga á Kaplakrikavöll í Hafnafirði í gærkvöldi í Bestu deildinni í knattspyrnu. Lauk leiknum með 1:1 jafntefli. Það voru heimamenn í FH sem rétt náðu í stigið með jöfnunarmarki í uppbótartíma og að sama skapi var svekkjandi fyrir Skagamenn að ná ekki að halda forystunni þegar svo langt var liðið á leiktímann. Heimamenn…Lesa meira

true

Vegavinna víða í Dölunum

Víða er starfsfólk Vegagerðarinnar að finna í Dalabyggð um þessar mundir. Verið er að gera hið besta úr erfiðri stöðu en hluti vegarins frá Fellsenda og að Erpsstöðum í Miðdölum var tættur í spað snemma vors og malarvegurinn „endurheimtur.“ Því þurfa vegfarendur að sætta sig við lækkaðan hraða og aka þennan kafla á 30-50 km/klst…Lesa meira

true

Á góðri stund í Grundarfirði um næstu helgi

Bæjarhátíðin „Á góðri stund í Grundarfirði“ fer fram dagana 24. – 28. júlí og verður því mikið um að vera í Grundarfirði. Hjónin Ásthildur Elva Kristjánsdóttir og Jóhann Jón Ísleifsson eru í stjórn hátíðarfélagsins sem ber hita og þunga af dagskránni. „Það verður mikið um að vera en dagskráin byrjar strax á miðvikudaginn með krakkabíói…Lesa meira

true

Búast má við sprengingum við Borgarbrautina

Heljarinnar framkvæmdir standa nú yfir við Borgarbraut 63 í Borgarnesi en búið er að rífa Sumarliðahús og byrjað að höggva vel í klettinn sem er þar innar á lóðinni. Í tilkynningu frá Borgarbyggð í dag kemur fram að fyrirhuguð er vinna við sprengingar og er reiknað með að sprengt verði einu sinni á dag um…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Reyni og Stokkseyri

Reynir frá Hellissandi tók á móti Stokkseyri í B-riðli 5. deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Ólafsvíkurvelli en búast mátti við spennandi og fjörugum leik en fyrri leikur liðana í lok júní lauk með 7-3 sigri Stokkseyrar. Heimamenn sýndu lipra takta í byrjun leiks en á meðan vörðust gestirnir frá Stokkseyri með…Lesa meira

true

Káramenn styrktu enn stöðu sína á toppi deildarinnar

Káramenn gerðu góða ferð á Wurth völlinn í Árbæ á sunnudaginn þegar þeir sigruðu Elliða örugglega 3:0, og tryggðu stöðuna á toppi 3. deildar. Það var Sigurjón Logi Bergþórsson, sem náði forystunni fyrir Kára í uppbótartíma fyrri hálfleiks og tryggði þannig forystuna í hálfleik. Eftir um klukkutíma leik bætti Oskar Wasilewski öðru marki við og…Lesa meira

true

Skallagrímur sótti ekki stig til Eyja

Skallagrímur hélt til Vestmannaeyja í gær og spilaði þar gegn liði KFS, í 4. deild karla í knattspyrnu. Í fyrri leik liðanna í maí fóru Skallagrímsmenn með sigur af hólmi en bæði lið voru fyrir leikinn á sunnudaginn með sjö stig, í áttunda og níunda sæti deildarinnar. Því var þetta gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði…Lesa meira

true

Hoppað í sjóinn veður í Hólminum

Mikið líf og fjör var við Stykkishólmsbryggju á föstudaginn síðasta. Sólríkt var með eindæmum og ferðafólk víða í bænum. Ungmenni voru þá að hoppa í sjóinn frá Stykkinu, önnur köstuðu fyrir fisk en voru ekki komin með mikinn afla þegar blaðamaður Skessuhorns hitti á veiðimennina. Ferðafólk var gangandi um Stykkishólm í dásamlegu veðri.Lesa meira

true

Víkingur vann toppslaginn

Það var toppslagur á Ólafsvíkurvelli í gær í 2. deildinni þegar Austfjarðarliðið KFA, sem var í öðru særi deildarinnar, mætti Víkingi sem var fyrir leikinn í þriðja sætinu, tveimur stigum á eftir KFA. Leikar fóru þannig að Víkingur sigraði 2:0 og endurheimti þar með annað sætið í deildinni. Austfirðingarnir byrjuðu betur í leiknum og áttu…Lesa meira