Íþróttir
Hinrik Harðarson leikmaður ÍA skoraði eina mark Skagamanna þegar þeir geru 1-1 jafntefli við FH. Ljósm. fotbolti.net

Jafnt í Kaplakrika

Skagamenn heimsóttu FH-inga á Kaplakrikavöll í Hafnafirði í gærkvöldi í Bestu deildinni í knattspyrnu. Lauk leiknum með 1:1 jafntefli. Það voru heimamenn í FH sem rétt náðu í stigið með jöfnunarmarki í uppbótartíma og að sama skapi var svekkjandi fyrir Skagamenn að ná ekki að halda forystunni þegar svo langt var liðið á leiktímann.

Jafnt í Kaplakrika - Skessuhorn