
Mirco Minicucci er ítalskur skiptinemi sem hefur í vetur dvalið hjá fjölskyldu í Búðardal. Hann er uppalinn í úthverfi Rómar, er á sautjánda ári og gengur nú í Auðarskóla í Búðardal. Mirco er félagslyndur, hefur náð vel til skólasystkina sinna og er duglegur að taka þátt í hverju því sem í boði er í samfélaginu.…Lesa meira








