Fréttir

true

Nú eru 47 hundrað ára eða eldri

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um elstu íbúa landsins. Í dag eru 47 einstaklingar 100 ára og eldri og þrír þeirra eiga maka á lífi. Elsti núlifandi einstaklingurinn er 105 ára kona búsett á Suðurlandi, fædd árið 1917. Þegar horft er á landshluta má sjá að flestir einstaklingar 100 ára og eldri eru búsettir á…Lesa meira

true

Ný tillaga að breyttri legu þjóðvegar um Borgarnes

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar 6. janúar síðastliðinn var ný tillaga lögð fram um breytingu á aðalskipulagi. Snertir hún legu þjóðvegar nr. 1 í gegnum Borgarnes. Nýja tillagan, sem kölluð er leið fimm, gerir ráð fyrir að veglínan verði færð utar á leirurnar framan við byggðina. Með breyttri legu þjóðvegar um Borgarnes verður í…Lesa meira

true

Sérstök þjónusta í boði fyrir börn með ungbarnakveisu

Foreldrar ungbarna og tilvonandi foreldrar geta nú andað örlítið léttar en áður. Domus barnalæknar hafa skipulagt sérstaka þjónustu fyrir óvær ungbörn, þ.e. ungbörn sem gráta mikið og gætu haft ungbarnakveisu. Þetta kemur fram á vef Domus barnalækna. „Ungbarnakveisa lýsir sér með endurteknum og langdregnum grátköstum á fyrstu vikum og mánuðum ævinnar sem foreldrar geta ekki…Lesa meira

true

Fólk úr uppsveitum er fallegra

Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna) í Landnámssetri Söguloftið á Landnámssetri Íslands var þétt setið á frumsýningu Ferðabókar Gísla Einarssonar, nýrri uppistandssýningu Gísla sem byggir á ferðabók þeirra félaga Eggerts og Bjarna. Árið 1752 fengu Eggert og Bjarni sérstakan styrk frá danska ríkinu til að ferðast um Ísland í fimm ár, rannsaka náttúru…Lesa meira

true

Réttindalaus ökumaður á rútu

Síðastliðinn föstudag var Lögreglan á Vesturlandi við umferðareftirlit við Hvalfjarðargöng og stöðvaði ökumann á rútu sem var nýkominn út úr göngunum. Við nánari skoðun kom í ljós að bifreiðin var ótryggð, ökumaðurinn var ekki með ökuskírteini, hann ekki með réttindi til að aka bifreiðinni og ekki með rekstrarleyfi. Eins og gefur að skilja fékk ökumaður…Lesa meira

true

Guðjón starfar með vinnuhópi SSV um eflingu öldrunarþjónustu

Undanfarið hefur verið að störfum vinnuhópur á vegum SSV um eflingu öldrunarþjónustu á Vesturlandi. Hópinn skipa Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Dalabyggð, Þura Hreinsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá HVE, Svala Hreinsdóttir sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Ingveldur Eyþórsdóttir yfirfélagsráðgjafi hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. Hópurinn skilaði snemma á síðasta ári tillögum um eflingu þjónustunnar og aukna…Lesa meira

true

Kvartað yfir ljósaskilti á Akranesvelli

Undanfarna mánuði hafa af og til borist kvartanir frá íbúum á Akranesi sem búa í nálægð við aðalvöll Knattspyrnufélags ÍA á Jaðarsbökkum. Kvartanirnar snúa að ljósaskilti sem er jafnframt vallarklukka á Akranesvelli. Telja nágrannar að of mikil birta komi frá ljósaskiltinu og valdi þeim miklu ónæði og komi jafnvel í veg fyrir nætursvefn. Við hliðina…Lesa meira

true

Endurbætur standa yfir á N1 í Borgarnesi

Endurbætur hófust á N1 í Borgarnesi í desember en búið er að skipta út gólfefnum, ljósum og innréttingum. ,,Við erum að vinna í því að breyta öllu en það er að koma nýtt útlit á allar stöðvar N1,“ segir Magnús Fjeldsted verslunarstjóri í samtali við Skessuhorn. ,,Stefnan er að koma sjálfsafgreiðslukössum í notkun fyrir vorið.…Lesa meira

true

Aðhlynning, umhyggja og virðing eru grunngildin í starfi

Rætt við Jóhönnu Marín Björnsdóttur forstöðumann hjúkrunarsviðs á Brákarhlíð Jóhanna Marín Björnsdóttir hefur starfað á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð frá grunnskólaaldri og gengið þar í flest störf. Hún tók við starfi forstöðumanns hjúkrunarsviðs í byrjun árs, ásamt því að hún tók óvænt sæti í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Jóhanna Marín er Borgnesingur í húð og hár og…Lesa meira

true

Eðalfiskur í Borgarnesi gerir samning við Marel

Marel og Eðalfiskur hafa gert með sér samning um nýja heildarvinnslu til framleiðslu á laxi, sem felur í sér nýja kynslóð Marel laxaflökunarvélar, auk Curio hausunarvélar sem nýsköpunarteymi Marel mun þróa í samstarfi við Eðalfisk. Fréttablaðið greindi frá. Vinnslulínan mun taka heilan, slægðan lax og skila beinhreinsuðum flökum sem eru tilbúin til ferskfiskpökkunar eða frekari…Lesa meira