Fréttir

true

Frábær aðsókn á æfingar hjá Undra

Nú er fjórða önn Íþróttafélagsins Undra í Búðardal komin af stað og er þessa önnina boðið upp á körfubolta, fimleika, íþróttagrunn og rafíþróttir. Frá nóvemberbyrjun hefur iðkendum staðið til boða að nýta sér frístundabíl til að komast milli Búðardals og Lauga, þar sem hluti æfinga fer fram, og hefur það gefist mjög vel, að sögn…Lesa meira

true

Samið um betri kjör í FVA

Frá árinu 2020 hefur verið samið við öll stéttarfélög starfsfólks Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi með því að fara yfir og endurskoða stofnanasamninga. Með stofnanasamningi er átt við samkomulag milli viðkomandi stofnunar og stéttarfélags þar sem hluti kjarasamnings er útfærður samningsaðilum til hagsbóta. Meðal þess sem samið er um í slíku ferli er launaröðun. Í FVA…Lesa meira

true

Snæfell með sigur á móti Aþenu

Snæfell og sameiginlegt lið Aþenu/Leiknis/UMFK áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Stykkishólmi. Snæfellskonur voru sterkari í fyrsta leikhluta og höfðu yfirhöndina nánast allan tímann. Þær komust í 16:8 eftir fimm mínútna leik og voru með sjö stiga forskot þegar flautan gall, 24:17. Snæfell var með níu stiga…Lesa meira

true

Óli Sveins stígur til hliðar og Vífill tekur við keflinu

Ólafur Sveinsson hagverkfræðingur lét um áramótin af störfum sem fagstjóri atvinnuráðgjafar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi eftir að hafa starfað við hana í ríflega þrjá áratugi. Vífill Karlsson hefur tekið við af Ólafi sem fagstjóri atvinnuráðgjafar, en hann hefur frá aldamótum starfað sem atvinnuráðgjafi og hagfræðingur SSV. Ólafur kom fyrst til starfa sem iðnráðgjafi á Vesturlandi…Lesa meira

true

Góður afli í öll veiðarfæri

Síðasta ár var mjög gott í öllum þremur höfnum Snæfellsbæjar og komu um 40 þúsund tonn að landi í alls 5.738 löndunum. Á Arnarstapa var landað 1.988 tonnum í 1.066 löndunum og í Ólafsvík var landað 12.620 tonnum í 2.621 löndun. Einnig komu á land í Ólafsvík 4.257 tonn af olíu í 16 skipakomum og…Lesa meira

true

Gul viðvörun – hyggilegt að huga að niðurföllum

Í fyrramálið gengur SA-stormur yfir landið suðvestanvert. Komin verður þíða með rigningu og væntanlega flughálku þar sem klaki er fyrir. Hviður allt að 40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli frá um klukkan fimm til níu í fyrramálið, eins undir Eyjafjöllum og á norðanverðu Snæfellsnesi fram eftir morgni.   Hiti verður á bilinu 5 til…Lesa meira

true

Leikskólinn Ugluklettur verður 90 barna skóli

Leikskólapláss í Borgarnesi hafa verið af skornum skammti undanfarin ár en á síðasta ári tók fræðslunefnd Borgarbyggðar þá ákvörðun að bæta fimm gámum við leikskólann Ugluklett. PJ verktakar sjá um framkvæmdirnar sem nú eru á lokametrunum en stefnt er að því að taka gámana í notkun um næstu mánaðamót. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn á…Lesa meira

true

Símenntun með íslenskunámskeið fyrir starfsmenn G.Run

Nú í janúar hafa erlendir starfsmenn G.Run í Grundarfirði sótt íslenskunámskeið hjá Símenntun. Námskeiðið var haldið í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði og voru þáttakendur 38 talsins sem var svo skipt í tvo hópa. Íslenska 1 var kennd fyrir byrjendur og íslenska 2 var fyrir lengra komna. Bæði þessi námskeið eru 40 klukkustundir. Kennarar á námskeiðinu voru…Lesa meira

true

Saga Skipavíkur og fyrirrennara hennar komin út á bók

Fyrir jólin kom út bókin Skipavík – Saga Skipavíkur í Stykkishólmi og fyrirrennara hennar 1900-2020. Bókin er í stóru broti, tæpar 300 blaðsíður, ríkulega myndskreytt 500 með ljósmyndum sem margar hverjar hafa ekki birst á prenti áður. Þá er bókin byggð á hundruðum heimilda sem Sigurður Bergsveinsson höfundur hennar hefur tekið saman. Eins og titillinn…Lesa meira

true

Andlát – Jón Sigurðsson fv. framkvæmdastjóri

Jón Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Íslenska járnblendifélagsins hf., er látinn 88 ára að aldri. Á starfsferli sínum var Jón m.a. fulltrúi í tveimur ráðuneytum, hagsýslustjóri og ráðuneytisstjóri. Þá var hann stjórnarmaður hjá Alþjóðabankanum áður en hann vatt kvæði sínu í kross. Íslenska járnblendifélagið var stofnað af íslenska ríkinu árið 1975 til að annast byggingu og rekstur…Lesa meira