Sigurður Bergsveinsson kom við á ritstjórn Skessuhorns með bókina um Skipavík. Ljósm. mm

Saga Skipavíkur og fyrirrennara hennar komin út á bók

Fyrir jólin kom út bókin Skipavík – Saga Skipavíkur í Stykkishólmi og fyrirrennara hennar 1900-2020. Bókin er í stóru broti, tæpar 300 blaðsíður, ríkulega myndskreytt 500 með ljósmyndum sem margar hverjar hafa ekki birst á prenti áður. Þá er bókin byggð á hundruðum heimilda sem Sigurður Bergsveinsson höfundur hennar hefur tekið saman. Eins og titillinn ber með sér er hér á ferðinni gagnmerk heimild um atvinnu- og iðnsögu við Breiðafjörð. Rakin er saga skipasmíða í Stykkishólmi á yfir 100 ára tímabili og fjallað um smíði 110 báta; allt frá minnstu árabátum upp í fullkomin nútíma fiskiskip. Einnig koma við sögu bátar sem Skipavík og fyrirrennarar fyrirtækisins hafa þjónustað, alls um 200 bátar sem borið hafa um 400 nöfn.

Saga Skipavíkur og fyrirrennara hennar komin út á bók - Skessuhorn