
Hér má sjá gámabyggð Uglukletts, nýju gámarnir eru vinstra megin en hægra megin eru gámar sem bætt var við leikskólann árið 2021.
Leikskólinn Ugluklettur verður 90 barna skóli
Leikskólapláss í Borgarnesi hafa verið af skornum skammti undanfarin ár en á síðasta ári tók fræðslunefnd Borgarbyggðar þá ákvörðun að bæta fimm gámum við leikskólann Ugluklett. PJ verktakar sjá um framkvæmdirnar sem nú eru á lokametrunum en stefnt er að því að taka gámana í notkun um næstu mánaðamót. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn á leikskólann og ræddi við Kristínu Gísladóttur leikskólastjóra og Elínu Friðriksdóttir aðstoðarleikskólastjóra.