Snæfell er í toppbaráttu í fyrstu deildinni. Ljósm. sá

Snæfell með sigur á móti Aþenu

Snæfell og sameiginlegt lið Aþenu/Leiknis/UMFK áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Stykkishólmi. Snæfellskonur voru sterkari í fyrsta leikhluta og höfðu yfirhöndina nánast allan tímann. Þær komust í 16:8 eftir fimm mínútna leik og voru með sjö stiga forskot þegar flautan gall, 24:17. Snæfell var með níu stiga forystu um miðjan annan leikhluta, 32:23, en þá tóku gestirnir við sér og náðu að minnka muninn í eitt stig rétt fyrir hálfleik, 37:36 fyrir Snæfelli var staðan þegar leikmenn gengu til búningsklefa.

Snæfell með sigur á móti Aþenu - Skessuhorn