Gylfi Scheving Ásbjörnsson skipstjóri á Tryggva Eðvars SH að landa 28 tonnum á mánudaginn. Gylfi segir að mánudagurinn hafi verið kaldasti sólarhringur síðan hann hóf sjómennsku. Ljósm. af

Góður afli í öll veiðarfæri

Síðasta ár var mjög gott í öllum þremur höfnum Snæfellsbæjar og komu um 40 þúsund tonn að landi í alls 5.738 löndunum. Á Arnarstapa var landað 1.988 tonnum í 1.066 löndunum og í Ólafsvík var landað 12.620 tonnum í 2.621 löndun. Einnig komu á land í Ólafsvík 4.257 tonn af olíu í 16 skipakomum og 4.230 tonn af salti í þremur skipakomum, samtals 8.487 tonn í 19 skipakomum. Í Rifi var landað 25.275 tonnum í 2.051 löndun.

Góður afli í öll veiðarfæri - Skessuhorn