Frábær aðsókn á æfingar hjá Undra

Nú er fjórða önn Íþróttafélagsins Undra í Búðardal komin af stað og er þessa önnina boðið upp á körfubolta, fimleika, íþróttagrunn og rafíþróttir. Frá nóvemberbyrjun hefur iðkendum staðið til boða að nýta sér frístundabíl til að komast milli Búðardals og Lauga, þar sem hluti æfinga fer fram, og hefur það gefist mjög vel, að sögn stjórnar Undra.

Frábær aðsókn á æfingar hjá Undra - Skessuhorn