Fréttir

true

Fröken klukka kveður

Síminn hefur ákveðið að leggja klukkunni, sjálfvirkri þjónustu þar sem landsmenn gátu fengið að vita hvað klukkan slær. Eftir nærri 86 ára óeigingjarnt starf hefur klukkan, sjálfvirk þjónusta Símans sest í helgan stein. Mánudaginn 6. janúar síðastliðinn hætti klukkan að svara í símann og játaði sig sigraða gagnvart tæknibyltingunni. Notkun á klukkuþjónustunni hefur minnkað mikið…Lesa meira

true

Vel er bókað á Mannamót markaðsstofanna á fimmtudaginn

Mannamót markaðsstofa landshlutanna fer fram í Kórnum í Kópavogi næstkomandi fimmtudag. Þangað hafa 230 sýnendur, fyrirtæki í ferðaþjónustu, boðað komu sína. Þar af eru 37 frá Vesturlandi, sem er ívið meiri þátttaka en hefur verið undanfarin ár. Eftirtalin fyrirtæki af Vesturlandi eru skráð: Akranes – Guðlaug, Akranesviti, Byggðasafnið í Görðum Fossatún Hótel Basalt Efra-Nes Hótel…Lesa meira

true

Hamar vann Skallagrím í miklum stigaleik

Hamar tók á móti Skallagrími í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Hveragerði. Miðað við gengi þessara liða undanfarið mátti búast við hörkuleik því Hamar hafði unnið fimm leiki í röð í deildinni og Skallagrímur fjóra. Það var sannkölluð flugeldasýning í fyrsta leikhluta því alls voru skoruð samtals 70 stig…Lesa meira

true

Höfnin á Akranesi ísilögð

Öll höfnin á Akranesi er ísilögð um þessar mundir. Júlíus Víðir Guðnason, hafnsögumaður og skipstjóri hjá Faxaflóahöfnum, segir í samtali við Skessuhorn að hann muni ekki eftir því á sinni 40 ára starfsævi í kringum höfnina að slíkt hafi áður gerst. Mikill frostakafli hefur verið á öllu landinu undanfarinn mánuð og segir á vef Veðurstofunnar…Lesa meira

true

Nettó afhenti Borgarneskirkju styrk

Sigurður Árni Júlíusson verslunarstjóri Nettó í Borgarnesi afhenti á dögunum Sr. Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur sóknarpresti styrk fyrir hönd Nettó. Styrkurinn, sem er formi inneignarkorta, fer til velferðarmála á vegum Borgarneskirkju. Nettó hefur um árabil séð um úthlutun styrkja í kringum jól og í aðdraganda þeirra og leggur áherslu á að styðja við og taka þátt…Lesa meira

true

Þriðja tunnan væntanleg

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 11. janúar tilboð frá Íslenska Gámafélaginu vegna þeirra laga sem tóku gildi nú um áramót og varða innleiðingu hringrásarhagkerfis. Ein 240 lítra tunna fyrir plast mun bætast við við heimilin í Reykhólahreppi. Fyrir er þar græn tunna sem verður eingöngu fyrir pappír og pappa. Segir í fundargerð að nýju…Lesa meira

true

Skagamenn misstu af sigri á móti Fjölni í spennuleik

ÍA tók á móti Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Hann fór frekar rólega af stað, lítið var skorað í fyrsta leikhluta en gestirnir voru sprækari framan af og komust í 4:11 eftir rúman þriggja mínútna leik. Skagamenn náðu að bregðast við þessu og…Lesa meira

true

Minningarathöfn um þau sem létust í krapaflóðum á Patreksfirði

Á sunnudaginn verða 40 ár liðin síðan tvö krapaflóð féllu á bæinn Patreksfjörð með þeim afleiðingum að fjögur létust og nítján hús skemmdust. Að því tilefni verður blásið til minningarathafnar um hin látnu. Þann 22. janúar árið 1983 voru Patreksfirðingar að gera sig prúðbúna fyrir þorrablót þegar krapaflóðin féllu með stuttu millibili á bæinn. Mikil…Lesa meira

true

Súputónleikar á Bóndadag í Tónlistarskóla Akraness

Á föstudaginn, sjálfan Bóndadag klukkan 12:00, verða súputónleikar í anddyri Tónlistarskólans á Akranesi. Nemendur skólans stíga á stokk, syngja og spila og félagar í kvennakórnum Ymi reiða fram súpu gegn vægu gjaldi.  Allir velkomnir! -fréttatilkynningLesa meira

true

Oddfellow færðu Umhyggju styrk

Þann 6. janúar síðastliðinn færðu fulltrúar Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa Umhyggju 2,4 milljónir króna í styrk. Um er að ræða afrakstur af sölu jólakorts Oddfellowreglunnar á Íslandi I.O.O.F., en Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa hefur í áraraðir útbúið og selt jólakort fyrir jólin og nýtt ágóðann til góðra verka. Myndin sem prýðir jólakortið og merkispjöldin er…Lesa meira