Fréttir

true

Auglýst verður eftir nýjum sveitarstjóra í Dalabyggð

Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggðar kom saman til síns fyrsta fundar í gær. Þar fór fram kjör í nefndir og ráð. Eyjólfur Ingvi Bjarnason var kosinn oddviti til eins árs og varaoddviti verður Ingibjörg Þóranna Steinudóttir. Aðalmenn í byggðarráði verða Skúli Hreinn Guðbjörnsson (formaður), Einar Jón Geirsson og Guðlaug Kristinsdóttir. Varamenn í byggðarráð verða Þuríður Jóney Sigurðardóttir,…Lesa meira

true

Spretthópi falið að leggja fram tillögur um vanda í kjötframleiðslu

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að skipa þriggja manna svokallaðan spretthóp sem skila á ráðherra tillögum og valkostagreiningu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu hér á landi. Nefnir hún hópinn spretthóp þar sem hann skal skila af sér niðurstöðu í síðasta lagi 13. júní og verður hún kynnt fyrir ríkisstjórn daginn eftir.  Verð á helstu aðföngum…Lesa meira

true

Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar í Borgarbyggð (uppf. frétt)

Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar í Borgarbyggð var haldinn í gær. Það var Guðveig Lind Eyglóardóttir sem stýrði fundinum fram að kjöri forseta sveitarstjórnar, þar sem hún hefur lengstan starfsaldur sveitarstjórnarmanna. Sigurður Guðmundsson (D) lagði fram bókun á fundinum, fyrir hönd minnihlutans, þar sem fram kom að gerðar hefðu verið athugasemdir við boðun fundarins og tímasetningu…Lesa meira

true

Heimferð á ferð um Vesturland

Á næstu dögum fer brúðuleiksýningin Heimferð af stað sem farandsýning um landið. Sýnt verður m.a. sýnd í Búðardal, Stykkishólmi, Grundarfirði, Rifi, Akranesi og í Borgarnesi dagana 9.-14. júní, auk fleiri staða víðsvegar um landið. Brúðuleikhúsið Handbendi stendur fyrir sýningunni en Heimferð er ör-leikhússupplifun í húsbíl fyrir lítinn áhorfendahóp í senn en aðeins átta áhorfendur komast…Lesa meira

true

Ágallar á brunavörnum grunnskólabyggingar á Varmalandi

Byggðaráð Borgarbyggðar tók á fundi sínum 17. maí síðastliðinn fyrir skýrslu brunaeftirlitsmanns Slökkviliðs Borgarbyggðar frá deginum áður. Þar er fjallað um ástand eldvarna í starfsstöð Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi. Við skoðun á húsinu fundust ágallar sem teljast alvarlegir og fól byggðarráð sveitarstjóra að láta gera kostnaðarmat á þeim framkvæmdum sem nauðsynlegt er talið að ganga…Lesa meira

true

Framkvæmdir komnar á veg á Lækjarseli í Flóahverfi

Nýtt atvinnusvæði í Flóahverfi á Akranesi hefur verið sérstaklega skilgreint sem Grænir iðngarðar og eru þeir fyrstu sinnar tegundar hér á landi. Flóahverfið er rétt utan þéttbýliskjarna Akraness og aðeins um 200 metra frá stofnbraut. Akraneskaupstaður og Merkjaklöpp ehf. eru í samstarfi við uppbyggingu á vistvænum iðngörðum. Fyrir nokkru hófust framkvæmdir á Lækjarseli og segir…Lesa meira

true

Fornbíladagur í Reykholti á morgun

Á morgun, laugardag, frá klukkan 13 til 17 verður haldið málþing og sýning gamalla bíla í Snorrastofu í Reykholti. Á málþinginu verður fjallað um gamlar bifreiðar, varðveislugildi þeirra og sögulegt samhengi. Á bílastæðinu fyrir framan Reykholtskirkju og Snorrastofu er ráðgert að sýna gamla bíla, sem áhugamenn munu koma með og hafa til sýnis. Meðal annars…Lesa meira

true

Uppsagnir hjá Skaganum 3X

Sjö starfsmönnum Skagans-3X á Akranesi og í Reykjavík var sagt upp störfum á þriðjudaginn og að auki níu starfsmönnum fyrirtækisins á Ísafirði. Framvegis verða öll verkefni seld og afhent til viðskiptavina frá Akranesi en ekki á báðum stöðum; Ísafirði og Akranesi, eins og verið hefur fram að þessu. Einnig verða innkaup og vöruhús á einum…Lesa meira

true

Bjartmar Þór dúxaði í Borgó

Bjartmar Þór Unnarsson úr Reykholtsdal dúxaði við útskrift úr Borgarholtsskóla í síðustu viku. Bjartmar útskrifaðist af náttúrufræðibraut og var hlaðinn verðlaunum þegar haldið var heim. Hann hlaut m.a. viðurkenningu fyrir góðan árangur í íslensku, bestan árangur í nýsköpun, góðan árangur í náttúrufræðigreinum, fyrir einstaka ástundun og frábæran árangur í námi á afreksíþróttasviði. Bjartmar æfir körfubolta…Lesa meira

true

Árlegur skoðunardagur fornbíla

Síðastliðinn föstudag mátti jafnt og þétt sjá eldri bílum ekið um Borgarbrautina, stofngötuna í Borgarnesi. Þá var árlegur skoðunardagur fornbíla hjá Frumherja við Sólbakka og voru meðal annars bílar í eigu félagsmanna í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar í Brákarey færðir til skoðunar. Þeir hafa lítið sést á götunum í fimmtán mánuðim, eða frá því í febrúar á…Lesa meira