
Sumar í Búðardal. Ljósm. sm.
Auglýst verður eftir nýjum sveitarstjóra í Dalabyggð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggðar kom saman til síns fyrsta fundar í gær. Þar fór fram kjör í nefndir og ráð. Eyjólfur Ingvi Bjarnason var kosinn oddviti til eins árs og varaoddviti verður Ingibjörg Þóranna Steinudóttir. Aðalmenn í byggðarráði verða Skúli Hreinn Guðbjörnsson (formaður), Einar Jón Geirsson og Guðlaug Kristinsdóttir. Varamenn í byggðarráð verða Þuríður Jóney Sigurðardóttir, Garðar Freyr Vilhjálmsson og Ingibjörg Þóranna Steinudóttir.\r\n\r\nÁ fundinum var rætt um ráðningu nýs sveitarstjóra. Aflað hafði verið tilboða frá þremur ráðningarstofum vegna aðstoðar við ráðninguna og verður samið við Hagvang. Ráðningasamningur við Kristján Sturluson fráfarandi sveitarstjóra rennur út 14. júní nk. Var samþykkt að semja við hann um að gegna starfi sveitarstjóra þar til ráðning eftirmanns hans liggur fyrir.",
"innerBlocks": []
}