Kynningarmynd málþings og sýningar tók Guðlaugur Óskarsson.
Fornbíladagur í Reykholti á morgun

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á morgun, laugardag, frá klukkan 13 til 17 verður haldið málþing og sýning gamalla bíla í Snorrastofu í Reykholti. Á málþinginu verður fjallað um gamlar bifreiðar, varðveislugildi þeirra og sögulegt samhengi. Á bílastæðinu fyrir framan Reykholtskirkju og Snorrastofu er ráðgert að sýna gamla bíla, sem áhugamenn munu koma með og hafa til sýnis. Meðal annars taka þátt í sýningunni félagar í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar.\r\n\r\nDagskráin málþingsins er eftirfarandi:\r\n
\r\n \t
Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, setur málþingið
\r\n \t
Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður: Bifreiðar í vörslu Þjóðminjasafnsins
\r\n \t
Bjarni Þorgilsson og Rúnar Sigurjónsson, Fornbílaklúbbi Íslands: Varðveisla og verkkunnátta
\r\n \t
Jóhannes Reykdal: Um sögu bílsins á Íslandi
\r\n \t
Andri Guðmundsson: Samgöngusafnið á Skógum
\r\n \t
Sólveig Jónasdóttir: Samgöngusafnið í Stóragerði
\r\n \t
Kynning á Samgönguminjasafninu Ystafelli
\r\n \t
Skúli G. Ingvarsson: Fornbílafjelag Borgarfjarðar
\r\n \t
Bjarni Guðmundsson: Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri
\r\n
\r\nKlukkutíma hlé verður frá kl. 14 til 15 þar sem gestir geta gengið um og skoðað bíla. Dagskrárstjóri verður Snorri Jóhannesson á Augastöðum.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []