Skólahúsnæðið á Varmalandi. Ljósm. sþ.

Ágallar á brunavörnum grunnskólabyggingar á Varmalandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Byggðaráð Borgarbyggðar tók á fundi sínum 17. maí síðastliðinn fyrir skýrslu brunaeftirlitsmanns Slökkviliðs Borgarbyggðar frá deginum áður. Þar er fjallað um ástand eldvarna í starfsstöð Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi. Við skoðun á húsinu fundust ágallar sem teljast alvarlegir og fól byggðarráð sveitarstjóra að láta gera kostnaðarmat á þeim framkvæmdum sem nauðsynlegt er talið að ganga í og leggja fyrir fyrsta fund nýs byggðarráðs. Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni eru athugasemdir um að flóttaleiðir séu ekki til staðar eða séu ógreiðfærar, björgunarop séu ekki fyrir hendi, merkingum sé ábótavant og að ganga þyrfti betur frá raflögnum. Skólastarfi er nú að ljúka á Varmalandi og munu úrbætur væntanlega eiga sér stað fyrir næsta skólaár.\r\n\r\nSlökkvilið Borgarbyggðar er með eldvarnareftirlitsmann sem sinnir eldvarnaeftirliti og er skýrslan eftir hann. Skyldur sveitarfélaga til þess að sinna slíku eftirliti byggja á 12. gr. laga um brunavarnir nr. 75 frá árinu 2000.",
  "innerBlocks": []
}
Ágallar á brunavörnum grunnskólabyggingar á Varmalandi - Skessuhorn