Framkvæmdir komnar á veg á Lækjarseli í Flóahverfi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nýtt atvinnusvæði í Flóahverfi á Akranesi hefur verið sérstaklega skilgreint sem Grænir iðngarðar og eru þeir fyrstu sinnar tegundar hér á landi. Flóahverfið er rétt utan þéttbýliskjarna Akraness og aðeins um 200 metra frá stofnbraut. Akraneskaupstaður og Merkjaklöpp ehf. eru í samstarfi við uppbyggingu á vistvænum iðngörðum.\r\n\r\nFyrir nokkru hófust framkvæmdir á Lækjarseli og segir á vefsíðunni www.floi.is að Lækjarsel sé sérlega vönduð og snjöll lausn í fasteignum fyrir þá sem vilja sitt eigið pláss í fyrirmyndar umhverfi Grænna iðngarða. Húsið er hannað og teiknað af Al-hönnun en sérstaklega var lagt upp með að byggingin myndi samrýmast fallegri og snyrtilegri sýn Grænna iðngarða með gæða efnisvali og góðum lausnum. Öll hönnun Lækjarsels miðar að snjalllausnum en sá kostur er fyrir hendi að kaupandi getur fjarlægt milliveggi ef hann vill sameina til dæmis tvö eða þrjú rými til að stækka sitt rými frekar.",
"innerBlocks": []
}
Framkvæmdir komnar á veg á Lækjarseli í Flóahverfi - Skessuhorn